Þjónustumiðstöðin Boðinn
Á Hrafnistu í Kópavog er ekki mikið um fyrirfram ákveðna dagskrá í félagslífi frekar en á venjulegu heimili, en þó er að jafnaði ein uppákoma á dag, t.d. tálgun, harmonikuspil, botsja, gönguferðir, böll og helgistundir.
Í Þjónustumiðstöðinni Boðaþingi 9 er hægt að setjast niður í notalegu umhverfi yfir kaffibolla og heimabökuðu meðlæti, lesa dagblöðin, hlusta á útvarp og ræða málin. Þjónustumiðstöðin er opin fólki á öllum aldri óháð félagsaðild, en sú starfsemi sem er niðurgreidd er eingöngu ætluð eldra fólki, búsettu í Kópavogi.
Þjónustumiðstöðin er opin frá kl 9:00 til 16:00 alla virka daga. Hádegisverður er framreiddur frá kl. 12:00 – 13:00 alla virka daga. Hádegisverð þarf að panta daginn áður í síma 512 7400. Dagskrá félagsheimilisins er auglýst á töflu í anddyri þjónustumiðstöðvarinnar. Einstaka viðburðir eru auglýstir á auglýsingatöflum á deildum. Sími þjónustumiðstöðvarinnar er 512 7400.
Hárgreiðslustofa
Anna Rósa Bjarnadóttir er hárgreiðslumeistari á Hrafnistu í Kópavogi. Hárgreiðslustofa er staðsett á 1. hæð þjónustumiðstöðvarinnar að Boðaþingi 9. Tímapantanir eru í síma 862 8465.
Fótaðagerðarstofa
Katrín Gyða Guðjónsdóttir er starfandi fótaaðgerðarfræðingur á Hrafnistu í Boðaþingi. Fótaaðgerðastofan er staðsett á neðstu hæð þjónustumiðstöðvarinnar að Boðaþingi 9. Tímapantanir eru í síma 692 4024 eða senda póst á netfangið katringyda94[hja]gmail.com