Loks liggja úrslitin fyrir í Lífshlaupskeppni Hrafnistuheimilanna fyrir árið 2023. Með töluverðum yfirburðum þetta árið stendur starfsfólk Hrafnistu Skógarbæ uppi sem sigurvegari.
Á meðfylgjandi mynd má sjá nokkra liðsmenn úr hópi starfsmanna á Hrafnistu Skógarbæ veita farandbikarnum viðtöku. Eins og sjá má ríkir mikil ánægja með sigurinn.
Til hamingju, Skógarbær!
Hrafnistuheimilin tóku þátt í vinnustaðakeppni Lífshlaupsins sem fram fór í febrúar sl. og hafnaði Hrafnista í þriðja sæti í flokki fyrirtækja með fleiri en 800 starfsmenn.