Ólafur Haukur Magnússon, yfirmatreiðslumaður eldhúsa Hrafnistuheimilanna, hefur starfað á Hrafnistu í 15 ár. Um leið og við óskum honum til hamingju með áfangann er honum þakkað fyrir gott starf og þá tryggð sem hann hefur sýnt heimilinu. Ólafur Haukur fékk venju samkvæmt afhenta starfsafmælisgjöf frá Hrafnistu af þessu tilefni og var meðfylgjandi mynd tekin við það tækifæri.
Á meðfylgjandi mynd eru frá vinstri: Ólafur Haukur og Oddgeir Reynisson framkvæmdastjóri rekstrarsviðs.