Fjögur heimili Hrafnistu voru tilnefnd sem VIRKt fyrirtæki ársins 2023; Hrafnista Sléttuvegur, Hrafnista Laugarási og Hrafnistuheimilin Nesvellir og Hlévangur í Reykjanesbæ.
VIRK veitir þeim fyrirtækjum sem sinna samstarfinu sérlega vel og sýna samfélagslega ábyrgð sérstaka viðurkenningu og vilja með því hvetja önnur fyrirtæki til góðra verka.
Hrafnista hefur um langt skeið lagt áherslu á samfélagslega ábyrgð og erum við því afar stolt af þessari tilnefningu og hlökkum til áframhaldandi samstarfs með VIRK starfsendurhæfingarsjóði
Að þessu sinni hlutu 13 fyrirtæki og stofnanir tilnefningu (sjá nánar)