Bleikar skreytingar á Hrafnistu í Hafnarfirði
Það má með sanni segja að Hrafnista í Hafnarfirði skarti sínu fegursta í bleika litnum þessa dagana eins og meðfylgjandi myndir sýna.
Það má með sanni segja að Hrafnista í Hafnarfirði skarti sínu fegursta í bleika litnum þessa dagana eins og meðfylgjandi myndir sýna.
Kristján Þór Júlíusson, heilbrigðisráðherra, heimsótti Hrafnistu í Hafnarfirði s.l. föstudag. Eftir að hafa fundað með fulltrúum framkvæmdaráðs Hrafnistu gaf ráðherra sér tíma til að skoða heimilið og spjalla við íbúa og starfsfólk. Hann steig svo nokkur dansspor á föstudagsballi heimilisfólks.
Ráðherra var mjög ánægður með heimsóknina á þetta stærsta öldrunarheimili landsins. Meðfylgjandi myndir voru teknar á föstudaginn í heimsókn ráðherra.
Bleiki dagurinn var haldinn í dag á öllum Hrafnistuheimilunum og heimilsfólk og starfsfólk tók virkan þátt með því að klæðast bleiku. Hið vikulega dansiball á Hrafnistu í Hafnarfirði fór fram í dag en það var að sjálfsögðu með bleiku yfirbragði í tilefni dagsins. Kristján Þór Júlíusson, heilbrigðisráðherra, var í Hafnarfirðinum og steig nokkur spor af talsverðri list. Hildigunnur Sigvaldadóttir sem er einn heimilismanna dansaði við ráðherrann en hún er móðursystir Kristjáns Þórs. Hún segir að alltaf liggi vel á fólki á föstudögum þegar dansskórnir séu teknir fram og að fólk komi víða að til að taka þátt.
mbl.is var á Hrafnistu í dag.
Hægt er að sjá myndband frá fréttinni hér:
http://www.mbl.is/frettir/innlent/2015/10/16/bleik_sveifla_a_hrafnistu/
Heimilisfólk og starfsfólk á Hrafnistu í Hafnarfirði tók virkan þátt í Bleika deginum í dag eins og meðfylgjandi myndir sýna.
Starfsfólk Hrafnistu í Kópavogi klæddust öll bleiku í dag í tilefni dagsins.
Heimilisfólk og starfsfólk á Hrafnistu í Reykjavík tekur virkan þátt í Bleika deginum með því að skarta bleika litnum í dag.
Haustfagnaður fór fram á Hrafnistu í Kópavogi í gær og hófst dagskráin með fordrykk kl. 17:30.
Veislustjórarnir, þeir Davíð Ólafsson og Stefán H. Stefánsson, sáu um að skemmta fólki af sinni alkunnu snilld.
Helgi Már Hannesson spilaði á píanó og eftir borðhaldið var slegið upp balli með Guðmundi Hauki Jónssyni.
Fimmtudaginn 22. október 2015 verður haldinn haustfagnaður heimilismanna og starfsmanna á Hrafnistu Nesvöllum. Haustfagnaðurinn hefst með fordrykk kl. 17:30.
Miðar eru til sölu á þjónustuborði Nesvalla dagana 12. - 19. október.
Miðaverð fyrir gesti er kr. 4.000.-
Í dag var opnuð, á Hrafnistu í Hafnarfirði, myndlistarsýning Þórdísar Kristinsdóttur. Þórdís mun vera sannkallaður gaflari og mjög fær listakona.
Sýningin verður opin frá og með fimmtudeginum 15. október til 18. nóvember 2015
Þórdís Kristinsdóttir er fædd árið 1930 í Hafnarfirði þar sem hún hefur alið allan sinn aldur.
Hún lærði í Listaskólanum við Hamarinn og var ein af fyrstu nemendum skólans. Þórdís hefur einnig numið í Myndlistaskólanum í Reykjavík og hjá listamönnunum Þorra Hringssyni og Jean Antoine Posocco. Hún hefur sótt ýmis myndlistarnámskeið í Reykjavík og Hafnarfirði.
Þórdís hefur tekið þátt í nokkrum samsýningum en fyrsta einkasýning hennar var í Gallerí Jörð, Hafnarfirði í október árið 2000.
Upplýsingar um sýninguna fást hjá Þórdísi í síma 861 3072 en einnig má fá upplýsingar hjá Böðvari Magnússyni í síma 892 7393.
Síða 168 af 178