Í nýútkomnu tímariti hjúkrunarfræðinga er m.a. skemmtilegt og áhugavert viðtal við Kristínu Vilborgu Þórðardóttur hjúkrunarfræðing sem starfar á Hrafnistu Sléttuvegi.
Eyrún Pétursdóttir, hjúkrunardeildarstjóri á Bylgjuhrauni Hrafnistu Hraunvangi, hefur starfað á Hrafnistu í 15 ár. Um leið og við óskum henni til hamingju með áfangann er henni þakkað fyrir gott starf og þá tryggð sem hún hefur sýnt heimilinu.
Eyrún fékk venju samkvæmt afhenta starfsafmælisgjöf frá Hrafnistu af þessu tilefni og var meðfylgjandi mynd tekin við það tækifæri. Með Eyrúnu á myndinni eru þau David Jacobsen verkefnastjóri og Hlín Axelsdóttir aðstoðardeildarstjóri.
Jadwiga Teresa Smolinska, starfsmaður í framleiðslueldhúsi Hrafnistu Laugarási, hefur starfað á Hrafnistu í 15 ár. Um leið og við óskum henni til hamingju með áfangann er henni þakkað fyrir gott starf og þá tryggð sem hún hefur sýnt heimilinu.
Jadwiga fékk venju samkvæmt afhenta starfsafmælisgjöf frá Hrafnistu af þessu tilefni og var meðfylgjandi mynd tekin við það tækifæri. Með Jadwigu á myndinni er Ólafur Haukur Magnússon, yfirmaður eldhúsa Hrafnistu.
Kristín Þóra Benediktsdóttir, deildarstjóri borðsals og ræstingar Hrafnistu Hraunvangi Hafnarfirði, hefur starfað á Hrafnistu í 10 ár. Um leið og við óskum henni til hamingju með áfangann er henni þakkað fyrir gott starf og þá tryggð sem hún hefur sýnt heimilinu.
Kristín Þóra fékk venju samkvæmt afhenta starfsafmælisgjöf frá Hrafnistu af þessu tilefni og var meðfylgjandi mynd tekin við það tækifæri.
F.v. Árdís Hulda, Hjördís Ósk, Guðlaug og María Fjóla
Guðlaug Sigmundsdóttir, starfsmaður á Sjávar-/Ægishrauni Hrafnistu Hraunvangi Hafnarfirði, hefur starfað á Hrafnistu í 25 ár. Um leið og við óskum henni til hamingju með áfangann er henni þakkað fyrir gott starf og þá tryggð sem hún hefur sýnt heimilinu.
Guðlaug fékk venju samkvæmt afhenta starfsafmælisgjöf frá Hrafnistu af þessu tilefni og var meðfylgjandi mynd tekin við það tækifæri.
Á myndinni eru frá vinstri: Árdís Hulda Eiríksdóttir forstöðumaður Hrafnistu Hraunvangi, Hjördís Ósk Hjartardóttir hjúkrunardeildarstjóri á Sjávar-/Ægishrauni, Guðlaug og María Fjóla Harðardóttir forstjóri Hrafnistu.
Vaskir íbúar á Hrafnistu Sléttuvegi voru önnum kafnir á dögunum við að setja niður kartöflur og gróðursetja jarðarberjaplöntur. Það verður spennandi að fylgjast með uppskerunni þegar líður á sumarið.
Sjómannadagurinn er sannkallaður stórhátíðardagur á Hrafnistu en eins og margir vita eru Hrafnistuheimilin í eigu Sjómannadagsráðs sem stofnað var af sjómannafélögum í Reykjavík og Hafnarfirði 25. nóvember 1937. Í fyrstu var tilgangurinn að standa fyrir árlegum sjómannadegi, en mikill stuðningur almennings við samtökin strax í upphafi leiddi fljótlega til þeirrar ákvörðunar (1939) að ráðið skyldi beita sér fyrir byggingu dvalarheimilis fyrir aldraða sjómenn (DAS).
Það var því mikið um dýrðir á öllum Hrafnistuheimilunum á sjálfan sjómannadaginn. Heimilin voru öll skeytt venju samkvæmt í tilefni dagsins og dagskrá heimilanna var með fjölbreyttu sniði. Lúðrasveit Reykjavíkur spilaði fyrir íbúa í garðinum samkvæmt venju á Hrafnistu í Laugarási og Lúðrasveit Hafnarfjarðar spilaði fyrir íbúa á Hrafnistu í Hraunvangi. Í framhaldinu var Sjómannamessa haldin í á báðum stöðum. Í hádeginu var boðið upp á kótilettur í raspi á öllum heimilunum og í síðdegiskaffinu var borin fram dýrindis marsipanterta. Tónlistaratriði voru flutt á öllum heimilum fyrir íbúa og gesti. Á Hrafnistu Laugarási söng Thelma Hrönn Sigurdórsdóttir og Helgi Hannesar spilaði undir á píanó. Á Hrafnistu Hraunvangi söng Guðrún Gunnarsdóttur söngkona og Pálmi Sigurhjartar spilaði undir á píanó. Á Hrafnistu í Reykjanesbæ (Nesvöllum og Hlévangi) söng Marína Ósk sig inn í hug og hjörtu viðstaddra. Á Hrafnistu Sléttuvegi fluttu þeir Halli Melló, Jón Ólafsson og Gói Karlsson „Lögin úr leikhúsinu“. Á Hrafnistu Boðaþingi, Ísafold og Skógarbæ fór Bragi Fannar á milli deilda og spilaði á harmonikkuna af sinni alkunnu snilld.
Við þökkum öllu þessu frábæra listafólki kærlega fyrir þeirra framlag við að gera sjómannadaginn hátíðlegan á Hrafnistu. Meðfylgjandi myndir voru teknar á Hrafnistuheimilunum á sjómannadaginn.
Lena Rós Þórarinsdóttir, starfsmaður á Bergi Hrafnistu Sléttuvegi, hefur starfað á Hrafnistu í 10 ár. Um leið og við óskum henni til hamingju með áfangann er henni þakkað fyrir gott starf og þá tryggð sem hún hefur sýnt heimilinu.
Lena Rós fékk venju samkvæmt afhenta starfsafmælisgjöf frá Hrafnistu af þessu tilefni og var meðfylgjandi mynd tekin við það tækifæri. Á myndinni er einnig Bryndís Rut Logadóttir sem fagnaði 5 ára starfsafmæli á dögunum og fékk hún einnig afhenta viðeigandi starfsafmælisgjöf frá Hrafnistu.
Á meðfylgjandi mynd eru frá vinstri: Bryndís Rut Logadóttir, Valgerður Kr. Guðbjörnsdóttir forstöðumaður Hrafnistu Sléttuvegi, Lena Rós og Dagný Jónsdóttir hjúkrunardeildarstjóri á Bergi Hrafnistu Sléttuvegi.
Laugardaginn 29. apríl hélt Karlakór Reykjavíkur tónleika fyrir heimilisfólk í Skálafelli á Hrafnistu í Laugarási. Kórinn söng af sinni alkunnu snilld og voru íbúar, gestir og aðrir viðstaddir himinlifandi eftir heimsókn þeirra.
Við þökkum þessum höfðingjum hjartanlega fyrir komuna.